Almennar upplýsingar um Atómstöðina-Núlleinn ehf.
Atóm 01 er Microsoft Certified Partner og Disill CMS er „.NET connected“. Fyrirtækið leggur metnað sinn í góða þjónustu við viðskiptavini og vinnur náið með þeim.
Megináhersla Atóm 01 í dag felst í hugbúnaðarþróun og þá aðallega þegar kemur að hinum ýmsu lausnum fyrir netið. Starfsmenn búa yfir mikilli sérþekkingu á því sviði. Aðal vara fyrirtækisins í dag er Disill CMS sem er eitt öflugasta vefumsjónarkerfið á markaðinum og er algjörlega smíð þess. Í seinni tíð hafa sérlausnir fyrir innri og ytri vefi viðskiptavina verið stærri hluti verkefna fyrirtækisins og skiptir þar miklu máli opin uppbygging grunnkerfisins (Disils). Nokkur öflugustu fyrirtæki landsins nota Disil CMS.
Nýlega var kynnt til sögunnar nýjasta útgáfu kerfisins, Disill 4.0 CMS sem er skrifað í .NET 2.0 frá Microsoft þar sem enn hefur verið aukið á notendavæni, sveigjanleika og eiginleika. Disill býr yfir flestum þeim kostum sem leitað er að varðandi vefumsjónarkerfi. Vefumsjónarkerfi auðvelda fyrirtækjum til muna að halda úti öflugum og lifandi vefjum. Þá gera vefumsjónarkerfin ekki kröfu um sérþekkingu þeirra starfsmanna sem annast utanumhald vefja. Þá er einnig lögð mikil áhersla á aðra þjónustuþætti, eins og póst- og vefhýsingu, kerfisþjónustu, sérforritun, vef- og hugbúnaðarráðgjöf auk hönnunar og vinnslu margmiðlunar- og markaðsefnis fyrir fjölmörg fyrirtæki og stofnanir.
Atóm 01 hefur einnig sinnt ráðgjafastörfum, úttektum/þarfagreiningu og hefur töluverða reynslu í vefhönnun, útlitshönnun og gerð markaðsefnis fyrir vefinn almennt. Þar er um ýmiss verkefni að ræða allt frá vefbannerum, flashverkefnum og reiknivélum fyrir fjármálastofnanir til flókinna netleikja.
Atóm 01 býður líka upp á vef- og pósthýsingu fyrir viðskiptavini sína.