
Þegar nýr vefur er settur upp vill fólk oft gleyma aðalatriðinu, “hvernig finnst ég á vefnum”. Með smávægilegri vinnu er einfalt að flýta ferlinu. Hér eru nokkur skref sem hjálpa til.
1. Stilltu leitarorð (e. meta data), skrifaðu stutta lýsingu um hverja síðu og stilltu titlana fyrir hverja síðu. Athugið að Disill birtir sjálfkrafa nafn síðu en mikilvægt er að setja nánari lýsingu í “title prefix”. Dæmi: síða sem heitir fréttir birtist í titli síðu sem /Fréttir. Slóðin verður þá síða.lén/frettir. Til að auka sýnileika skal farið í “page properties” í Disill og reiturinn “title prefix” fylltur út. Þá gæti titillinn orðið td. Atom01 / Fréttir eða Frábærar lausnir / Fréttir. Allt eftir því hvernig notandi vill setja þetta upp.
2. Merktu “alt” tög fyrir myndir og tengla. Þessu er stjórnað í textaritlinum í Disil.
3. Sendu vefslóðina til Google. ->
hér4. Að endingu er gott að senda google veftréð eins og það lítur út. Hjálpartól er hægt að finna
hér.
Þessi listi er að sjálfsögðu ekki tæmandi en ætti að hjálpa. Hafið samband við Atom01 ef þið viljið nánari skýringar eða aðstoð við að koma vefnum ykkar á framfæri.