Nýr vefur Kynnisferða
Nýlega lauk Atom uppsetningu á vef fyrir Kynnisferðir. Vefurinn er
hannaður af auglýsingastofu Kynnisferða en hönnun á virkni var í höndum
Atom og sérfræðinga hjá Kynnisferðum. Vefurinn þykir ákaflega vel heppnaður og var unnin hratt og öruglega.
Þar sem starfsemi kynnisferða er á sviði ferðaþjónustu þá reiða þeir sig á stöðuga og öfluga lausn og það var þessvegna sem Disill varð fyrir valinu. Samhliða Disil keyrir sölueiningin Disill Sales og þaðan er svo hægt að bóka ferðir yfir netið.
Nú er unnið að uppsetningu snertiskjálausnar (e. kiosk) sem talar beint við sama grunn og vefurinn. Þannig næst að víkka út sölusviðið og ná beint til ferðamannsins sem getur keypt ferðir um snertiskjá hvenær sem er.
Samstarfið hefur verið afar ánægjulegt og óskum við Kynnisferðum til hamingju með nýja vefinn.
3.11.2008 -
hemmi