Atom01 Atom01
6.5.2008 | 16.50

Nýr vefur Gagnaveitu

Nýr og glæsilegur vefur Gagnaveitu Reykjavíkur er kominn í loftið. Vefurinn keyrir á Disil 4 en hönnun var í höndum Gagarín. Vefurinn er mjög glæsilegur og efnismikill.
14.4.2008 | 11.32

Nýr vefur Flugmálastjóra

Nýr vefur Flugmálastjóra er kominn í loftið. Vefurinn keyrir á Disil 4 CMS og var hannaður af snillingunum hjá Skapalóni. Vefurinn er gríðarlega efnismikill enda mikið af lögum og reglum í kringum flug og flugstjórn.
11.4.2008 | 09.51

Stærsta verkfræðistofa landsins með nýjan vef

Hluthafar VGK-Hönnunar hf. og Rafhönnunar hf. samþykktu formlega sameiningu félaganna á hluthafafundi 10. apríl 2008 og mun nýtt félag heita Mannvit hf. Með sameininguni verður til stærsta verkfræðistofa landsins með um 360 starfsmenn.
4.4.2008 | 15.03

Hvernig get ég orðið sýnilegur á Google hraðar?

Þegar nýr vefur er settur upp vill fólk oft gleyma aðalatriðinu, “hvernig finnst ég á vefnum”. Með smávægilegri vinnu er einfalt að flýta ferlinu. Hér eru nokkur skref sem hjálpa til.
14.11.2007 | 16.37

Nýr vefur OR í Disil 4

Nýverið opnaði Orkuveita Reykjavíkur nýjan vef, or.is. Nýi vefurinn keyrir á Disil 4 og hefur að geyma mikinn fjölda sérlausna. Útlitið og aðgengismál voru í höndum Gagarín.

Atóm01 óskar OR til hamingju með glæsilegan vef.
18.9.2007 | 13.07

DV.is - Hvað er að frétta?

Á föstudag fór nýr vefmiðill í loftið, DV.is. Atóm01 var í ráðgjafa og hönnunarteymi DV. Vefnum er ætlað að koma með nýjar áherslur í efnisvali á vefnum byrjunin lofar góðu. Notendur geta tekið virkari þátt en áður hefur þekkst með birtingu mynda, myndabanda og hljóbúta. Við óskum útgáfufélagi DV til hamingju með vefinn.
18.9.2007 | 13.02

AriMagg.com

Súperljósmyndarinn Ari Magg hefur opnað nýjan vef sem keyrir á Disil. Leiðarkerfið er birt upp í flash en stjórnað í gegnum Disil CMS. Ari hyggst nota vefinn til að kynna sig og ná þannig til stærri markhóps. Endilega skoðið vefinn á www.arimagg.com. Ari til hamingju með nýja vefinn!
13.8.2007 | 10.27

Stafrænn hestur

Nú fyrir helgi fór ný útgáfa af vef Eiðfaxa í loftið. Vefurinn var unnin af Atom01 í samstarfi við Digital Horse sem er hjartað í þessu verkefni. Margt spennandi verður í boði á vefnum fyrir áhugafólk um íslenska hestinn, þar má nefna hluti á borð við verslun, blog, spjall og sala á ferðum. Við hvetjum alla til að skoða vefinn.
13.8.2007 | 10.24

Nýr starfsmaður.

Á dögunum var hönnuðurinn Heiðar Ingi Kolbeinsson ráðin til starfa á Atom/01. Heiðar kemur til með að styrkja hópinn þar sem hann er einnig afbragðs CSS og flash'ari. Við bjóðum Heiðar velkominn til starfa.
11.7.2007 | 15.27

Ný vefsíða Atóm 01

Hér gefur að líta nýja vefsíðu Atóm 01. Útlitshönnun vefsins var unnin út frá nýju merki félagsins og markaðsefni. Síðan keyrir að sjálfsögðu á nýjustu útgáfu Disils vefumstjórnarkerfisins, útgáfu 4.0. Kerfið er skrifað í .NET 2.0 og hefur verið endurbætt til muna.