Ný vefsíða Atóm 01
Hér gefur að líta nýja vefsíðu Atóm 01. Útlitshönnun vefsins var unnin út frá nýju merki félagsins og markaðsefni. Hönnuður nýja markaðsefnisins var Dóra Ísleifsdóttir, grafískur hönnuður, en Bárður Bergsson vann útlit vefsins. Á næstunni verður síðan unnið í að yfirfara efni á síðunni, bæta og breyta. Allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar á info@atom01.is.
Síðan keyrir að sjálfsögðu á nýjustu útgáfu Disils vefumstjórnarkerfisins, útgáfu 4.0. Kerfið er skrifað í .NET 2.0 og hefur verið endurbætt til muna.