Atom01 Atom01

Stafrænn hestur

Nú fyrir helgi fór ný útgáfa af vef Eiðfaxa í loftið. Vefurinn var unnin af Atom01 í samstarfi við Digital Horse sem er hjartað í þessu verkefni. Margt spennandi verður í boði á vefnum fyrir áhugafólk um íslenska hestinn, þar má nefna hluti á borð við verslun, blog, spjall og sala á ferðum.

Þá keyrir vefurinn á þremur tungumálum. Eiðfaxi.is var opnaður við hátíðlega athöfn í tjaldi Eiðfaxa á heimsmeistarmóti íslenska hestsins í seinustu viku. Við hér á Atóm/01 óskum íslensku hestaunnendum innilega til hamingju með nýja vefinn og vonumst til að hann eigi eftir að þjóna öllum þeim sem lifa og hrærast í þessari skemmtilegu íþrótt.

www.digitalhorse.is

Verkefnastjórn var í hönum Bjarna Lúðvíkssonar hjá Miracle.
Arnar Ólafsson hjá Miða hannaði vefinn.