Disill CMS
Vefumsjónarkerfi / Vefstýrikerfi
Disill CMS er vefstýrikerfi skrifað í .NET umhverfinu frá Microsoft. Kerfið býður upp á óþrjótandi möguleika við uppbyggingu, viðhald og umsjón vefja. Haft var að leiðarljósi að búa til heilsteypt og opið kerfi þar sem engir möguleikar eru útilokaðir.
Kerfið heldur utan um eitt eða fleiri veftré, þar sem hver síða er með tilteknu sniðmáti (e. template). Hvert mát getur innihaldið ótakmarkað magn af kerfiseiningum (e. module). Kerfiseiningum er raðað inn í fyrirframskilgreind hólf (e. placeholder) á sniðmátunum, og eru annað hvort sameiginlegar með síðum með sama sniðmáti eða sértækar fyrir tiltekna síðu. Einnig geta sniðmát og síður haft sameiginlegar kerfiseiningar, þannig að uppfærsla á efni sem kemur fyrir á mörgum stöðum á vefnum verður mun auðveldari. Sveigjanleiki í útliti er eitt af því sem haft var að leiðarljósi við smíði Dísils. Við smíði sniðmáta eru notuð þar til gerðar leiðarkerfis-einingar, sem byggðar eru upp líkt og HTML-tög. Allt útlit er skilgreint í sniðmátunum, leiðarkerfiseiningarnar innihalda engar útlitsupplýsingar, eingöngu virkni. Þannig eru engar hömlur settar á vefhönnuði við smíði leiðarkerfa. Hvert kerfi getur haldið utan um fleiri en einn vef. Þannig er hægt að samnýta hýsingu og gagnagrunna. Hægt er að nýta efni á fleiri en einum vef. Þannig er til dæmis hægt að samnýta efni á innri og ytri vef fyrirtækis.
Úrval eininga
Meðal eininga sem til eru fyrir Disill kerfið eru:
Textaeining
Greina- og fréttakerfi
Starfsmannakerfi, sem hægt er að samnýta á ytri og innri vef fyrirtækis en birta t.d. ítarlegri upplýsingar á innrivef en ytri
Gengisskráning, sjálfkrafa lesin frá Seðlabanka Íslands
HTTP eining, möguleiki á að gera http-köll á aðra vefi og birta niðurstöður eða svör kallsins á síðu
IFrame, Flash og Quicktime
Mail Form - Gerir notendum kerfisins kleift að búa til fyrirspurnareyðublöð (form) án nokkrar fyrirhafnar eða sérþekkingar. Hægt er að velja milli margra tegunda af reitum og fá niðurstöður sendar í pósti.
Skoðanakannarnir
Veftré og leit
Innskráning á læstar síður fyrir skilgreinda notendur.
Myndasýningar / -söfn
Auk þess er sífellt verið að búa til nýjar einingar til að mæta kröfum viðskiptavina okkar.
Hægt er að skilgreina margar útgáfur af hverri einingu, sem hver hefði þá sérstakt útlit.
Aðgangsstýring
Allt kerfið er með aðgangsstýringu. Þannig er hægt að takmarka aðgengi vissra aðila að uppfærslum á vefnum. Hægt er að takmarka aðgengi að stökum síðum, kerfiseiningum og greinaflokkum. Einnig er ytri aðgangsstýring fyrir notendur vefsins, þar sem bæði er hægt að fela valdar síður eða valdar einingar á síðu fyrir notendur sem ekki eru innskráðir.
Flýtiminni.
Hægt er að geyma stakar síður, kerfiseiningar og leiðarkerfiseiningar í flýtiminni. Þannig má ná fram meiri afköstum á vefþjónum auk þess sem fljótlegra er að vafra um vefinn.
Leitarvél
Í Disil er innbyggð leitarvél sem leitar í texta á síðum auk leitarorða og síðulýsinga. Með því að skrá inn leitarorð fyrir hverja síðu er hægt að ná fram betri leitarniðurstöðum. Auk þess sér kerfið um að setja inn META tög sem tryggja betri leitarniðurstöður í leitarvélum. Mynda- og skrásöfn Auðvelt er að setja myndir og hvers kyns skrár sem geymdar eru í miðlægu safni inn á vefinn . Kerfið sér sjálft um að búa til mismunandi útgáfur af myndum. Frétta- og greinakerfi Hægt er að halda utan um marga fréttaflokka og skilgreina bæði skrif- og birtingarréttindi á hvern flokk.
Sjálfvirkar villutilkynningar Ef villa kemur á vef sem notar Dísil er tölvupóstur með öllum upplýsingum um villuna sendur til Atóm/Núlleins. Með því er tryggt að við fáum að vita af öllum villum sem hugsanlega gætu leynst í kerfinu eða á vefnum sjálfum. Fullkomið þróunarumhverfi Auðvelt er að skrifa nýjar og sérsniðnar kerfiseiningar, og er til staðar fullkomið þróunarumhverfi til þess. Hægt er að skrifa einingar á öllum þeim tungumálum sem .NET umhverfið styðst við (um 25 forritunarmál). Disill CMS er 100% MSIL kóði, ekki er stuðst við neinn utanaðkomandi kóða og þannig næst að nýta alla þá möguleika sem .NET umhverfið býður upp á.