Atóm01 hóf nýverið samstarf við Open Hand. Með því getur Atóm01 boðið viðskiptavinum sínum aðgang að tölvupósti, dagatali og samræmingu við MS Outlook í gegnum farsíma. Þetta er frábær lausn á góðu verði sem vert er að athuga. Hafið samband við Hermann (hermann@atom01.is) til að fá nánari lýsingar, verð og fleira.
OpenHand sérhæfir sig í samskiptalausnum fyrir fólk á ferðinni. Auðvelt aðgengi að gögnum og hámarks hagkvæmni í rekstri eru hornsteinar þróunarvinnu hjá OpenHand. Framtíðarsýn OpenHand byggir á árangursríku samstarfi við viðskiptavini með það að leiðarljósi að veita starfsmönnum tækifæri til að vera fullfærir um að sinna skyldum sínum, óháð stað og stund. Með það í huga snýst þróunarvinna OpenHand ekki eingöngu um aðgang að grunnupplýsingum eins og tölvupósti, dagatali og tengiliðalista. OpenHand rekur vinnuumhverfi þar sem upplýsingakerfi fyrirtækja er hægt að heimfæra yfir á símtæki starfsmanna. Við slíkar aðstæður er nýting tíma hámörkuð og framleiðni eykst. Stefna OpenHand er að lausnin vaxi með þörfum fyrirtækisins, hvort sem er um að ræða fjölda starfsmanna eða þarfir þeirra.