Hver er sérstaða Dísils ?
Sérstaða Dísils er hve opið og sveiganlegt kerfið er. Engar útlitshömlur eru settar á vefhönnuði, né hömlur á stærð eða virkni vefsins. Auðvelt er að smíða nýjar einingar og flytja virkni eldri eininga inn í kerfið.
Getur Dísill haldið utan um mörg vefsvæði ?
Dísill CMS getur auðveldlega haldið utan um mörg vefsvæði, sem þá samnýta vefþjón og gagnagrunn. Hægt er að samnýta efni milli vefsvæða. Skilgreint er í Dísill hvaða vefsvæði svara hvaða lénum, og hvaða tölu og dagasnið er notað á því vefsvæði.
Hvernig er unnið með myndir og skjöl í Dísil ?
Dísill heldur utan um myndir og skjöl í sameiginlegum skjala- og myndasöfnum. Auðvelt er að tengja í skjöl sem hafa verið sett inn í skjalasafnið og setja jafnt inn myndir sem skjöl meðan verið er að skrifa texta. Dísill sér um að búa til mismunandi stærðir af myndum sem settar eru inn í kerfið, og eru þær stærðir skilgreindar af þeim sem setur upp vefinn. Einnig er hægt að bæta við öðrum myndastærðum síðar, ef þörf krefur. Auðvelt er að fella myndir inn í texta eða setja þær inn á síðu sem sér einingu.
Er leit í Dísil ?
Já auðvitað. Leitarvélin sem Dísill notar leitar bæði í lýsigögnum (metadata) fyrir hverja síðu og einnig á texta síðunnar, þannig að betri leitarniðurstöður en ella eru tryggðar. Einnig sér Dísill um að setja inn metatög á síðurnar en þannig nást betri niðurstöður í almennum leitarvélum
Hvaða umhverfi þarf til að keyra Dísil ?
Dísill CMS notar .NET umhverfið frá Microsoft. Studdir vefþjónar eru IIS og Apache (með viðbót frá covalent). Studdir gagnagrunnar eru MSDE og Microsoft SQL Server. Dísill er 100% MSIL kóði. Gert er ráð fyrir að notaður sé Internet Explorer 6.0 eða Mozilla Firefox 1.0 til að vinna í Dísil, en síður sem haldið er við í kerfinu er hægt að skóða í hvaða vafra sem er.
Þarf ég mikla forritunarkunnáttu til að skrifa nýjar einingar í Dísil ?
Engrar sérstakrar forritunarkunnáttu er þörf til að skrifa einfaldar einingar sem virka eins og "include" bitar í Dísil. Hægt er að skrifa flóknari einingar á öllum forritunarmálum sem .NET umhverfið styður (yfir 25 forritunarmál).
Þarf ég einhverja forritunarkunnáttu til að búa til sniðmát í kerfið ?
Nei. Sniðmát eru einfaldar html-síður þar sem eingöngu er búið að skilgreina svæði sem nota á sem einingahólf. Auðvelt er að smíða hvaða leiðarkerfi sem er með notkun leiðarkerfis-eininga og eina kunnáttan sem þarf til að vinna með þær einingar er html-kunnátta.
Get ég falið efni á vefnum fyrir þeim sem eru ekki innskráðir notendur á vefinn, t.d. viðskiptavinir eða meðlimir ?
Já, bæði er hægt að fela síður og einnig einingar á síðu fyrir notendum sem ekki eru innskráðir.
Heldur Dísill utan um fyrri útgáfur af texta ?
Já, Dísill heldur utan um allar fyrri útgáfur af texta, skráð er hver breytti texta og hvenær og auðvelt er að afturkalla fyrri útgáfur.
Er flýtiminni í Dísill ?
Já, hægt er að skilgreina hve lengi Dísill geymir hverja einingu í flýtiminni. Einnig er hægt að stjórna svokölluðum http-cache-control headerum, sem segja til um hve lengi má geyma hverja síðu í flýtiminni á vefseljum (e. proxy) og á vöfrum.
Hvernig er aðgangstýring í Dísil ?
Hægt er að veita aðgang að hverjum vef fyrir sig, hverri síðu eða hverri einingu á síðu. Hver eining getur einnig erft réttindi frá þeirri síðu sem hún er á. Réttindi eru veitt á hópa sem notendur eru síðan meðlimir í. Þannig er hægt að hópa saman notendur, t.d. markaðsdeild, vefstjóra, penna o.s.frv.
Er Dísill CMS öruggur ?
Já, Dísill CMS er mjög öruggur. Hvergi er hægt að koma beinum skipunum að gagnagrunninum. Öll lykilorð eru dulkóðuð með SHA5 dulkóðun, auk þess sem allar aðgerðir innan kerfisins eru skráðar á ip-tölu og notanda.
Eru vefir sem haldið er við í Dísil aðgengilegir fyrir leitarvélar ?
Já. Allar vefslóðir í Dísil eru fullgildar vefslóðir skv. w3c leiðbeiningum, þannig að leitarvélar eiga auðvelt með að finna síður.
Með fullgildum vefslóðum (http://www.atom01.is/Forsida/Disillvefstyrikerfid/Spurtogsvarad/) í stað slóða eins og /default.aspx?pageid=5 verður vefsvæðið aðgengilegra bæði fyrir leitarvélar og notendur. Auk þess sér Dísill um að setja meta-tög inn á síðurnar sem tryggir betri leitarniðurstöður í leitarvélum.