Atom01 Atom01

Tæknileg lýsing Disill CMS 4.0:

Lágmarkskröfur vélbúnaðar:

• 1.0Ghz Pentium
• 1gb RAM
• 1gb laust diskapláss

Lágmarks hugbúnaðarkröfur:

• Windows 2000 Server
• Windows SQL Server 2000

Tæknileg lýsing grunnkerfis:

• Forritunarmál: C#.NET 2.0
• Gagnagrunnur: Microsoft SQL Server

Einingar í Disill 4.0 eru skrifaðar í .NET 2.0, en mega vera skrifaðar í hverju því forritunarmáli sem þar er stutt, þ.e.a.s. þau sem eru studd af Common Language Runtime.

Grunnkerfið er fyllilega stutt af þeirri virkni sem Sql Server 2000 og Windows Server 2000 bjóða upp á, en mælt er með að keyrt sé á Windows Server 2003 og Sql Server 2005 vegna þeirra möguleika sem þar er boðið upp á til áframhaldandi þróunar, svo sem fullkomnari leit í textum og handhægari umsjón með vefþjónustum Windows Server.

Kerfið er með innbyggðan stuðning við aukenningu með Active Directory, og hægt er að klasa það án takmarkana.

Umsjónarkerfið sem og birting styður ótakmarkaðan fjölda tungumála og einfalt er að breyta textum eftir þörfum, sem og bæta við fyir sérforritaðar einingar. 

Útlit bakenda er hægt að aðlaga að þörfum hvers og eins, svo sem liti, staðsetningar umsjónareininga og texta. Engar útlitshömlur eru settar á vefi hvorki innri né ytri.

Auðvelt er fyrir forritara að smíða nýjar einingar í kerfið, sé kunnátta í .NET 2.0 til staðar. Einfaldar einingar má smíða á skömmum tíma, en stærð þeirra og fjöldi er ótakmarkaður.