Atom01 Atom01

Flugfélag Íslands

Vefur Flugfélagsins keyrir í Disil CMS og var bókunarvél Flugfélagsins frá Radixx sett upp sem kerfiseining í Disil.  Verkið var unnið í góðu samstarfi við IGM og tölvudeild Flugfélagsins.

Flugfélag Íslands er mjög framarlega á sviði rafrænnar sölu á internetinu og hefur sala flugmiða á netinu aukist til muna ár frá ári. IGM sá um útlitsuppsetningu á bókunarvélinni frá Radixx sem Atóm/Núlleinn setti upp og aðlagaði að Disil kerfinu. Með þessu móti hafa starfsmenn Flugfélagsins fengið heilstætt stjórnkerfi sem gerir þeim kleift að stjórna birtingu efnis á vefinn á mjög einfaldan hátt. Flugfélag Íslands var stofnað árið 1997 við samruna innanlandsflugs Flugleiða og Flugfélags Norðurlands.

Markmið með samrunanum var að byggja upp öflugt en sveigjanlegt flugfélag sem auk innanlandsflugs þjónar öðrum vest-norrænum löndum svo sem Færeyjum og Grænlandi. Félagið er í mikilli samvinnu við alla ferðaþjónustu á Íslandi.

Í dag er Flugfélag Íslands í eigu Icelandair Group