Fjarðabyggð varð til við sameiningu Eskifjarðarkaupstaðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps þann 7. júní 1998. Fjarðabyggð er stærsta sveitarfélag á Austurlandi og eru íbúar þess um 3.100. Neskaupstaður er nyrstur byggðarkjarnanna og stendur við Norðfjörð, Eskifjarðarkaupstaður stendur við Eskifjörð, sem gengur inn úr Reyðarfirði og er byggðin með ströndinni við norðanverðan fjörðinn en Búðareyri við Reyðarfjörð er syðst byggðarkjarnanna. Í Fjarðabyggð er rekin öflug og fjölbreytt þjónusta enda speglast það vel á vef sveitarfélagsins, www.fjardabyggd.is, ekki síst skemmtilegum myndasíðum sem sýna mannlífið og vefmyndavélum á Eskifirði, Neskaupstað, Reyðarfirði og skíðamiðstöðinni í Oddsskarði.
Atóm/Núlleinn annaðist hönnun á vef Fjarðabyggðar og setti hann upp í Dísil kerfi. Fjarðabyggðarmenn sjá um daglega uppfærslu og á vefnum er ævinlega að finna nýjustu fréttir og upplýsingar úr sveitarfélaginu, auglýsingar, skoðanakannanir og margt fleira.
Sjá nánar á, www.fjardabyggd.is