Lýsing hf. var stofnað árið 1986 og fagnaði 20 ára afmæli þann 8. september sl. Það var á haustmánuðum árið 1986 sem Lýsing var sett á stofn af Búnaðarbanka Íslands og Landsbanka Íslands með fulltingi Sjóvár og Brunabótafélags Íslands. Starfsmenn voru upphaflega fjórir en eru nú tæplega 60 talsins og hefur fyrirtækið vaxið mjög síðustu ár.
Lýsing er leiðandi fyrirtæki í fjármögnun með eignaleigusamningum á Íslandi og ráðgjafar okkar leggja metnað sinn í að veita viðskiptavinum okkar faglega ráðgjöf, skjóta og góða þjónustu. Aðalstarfsemi Lýsingar hefur frá upphafi verið á sviði eignaleigu og fyrirtækið fjármagnar atvinnutæki, atvinnuhúsnæði og bifreiðar fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Lýsing er þjónustufyrirtæki og starfsfólk kappkostar að hafa hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi. Við stefnum að langtíma viðskiptasamböndum sem byggja á gagnkvæmu trausti. Mörg þeirra fyrirtækja sem hófu viðskipti við Lýsingu á fyrstu starfsárum félagsins eru enn í viðskiptum og hafa vaxið úr smáfyrirtækjum í stór og öflug fyrirtæki á landsvísu. Lýsing leggur áherslu á að ráða hæft og áhugasamt starfsfólk.