THG Arkitektar
THG Arkitektar var stofnað í október 1994 og er verksvið fyrirtækisins almenn hönnun bygginga, áætlanagerð, eftirlit ásamt verkefna- og byggingastjórnun mannvirkja.
Verkefni hafa verið margvísleg, m.a. hönnun skrifstofu- og verslunarhúsnæðis, hótelbygginga, iðnaðarbygginga, fjölbýlishúsa, stofnana fyrir aldraða, flugstöð, íþróttamannvirkja auk deiliskipulaga, endurbygginga eldra húsnæðis og þátttöku í umhverfismati.
Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur það verið metnaðarmál að uppfylla óskir viðskiptavina á faglegan og hagkvæman hátt. Á síðustu árum hefur starfsmönnum við verkefnastjórnun og eftirlit með framkvæmdum fjölgað innan stofunnar en stofan er brautryðjandi á því svið i meðal arkitektastofa landsins.
Starfsmenn fyrirtækisins eru nú yfir 40 talsins og búa yfir fjölbreytilegri reynslu á sviði hönnunar, skipulagningar ásamt verkefnastjórnunar og eftirlits með framkvæmdum. THG rekur stofu bæði í Reykjavík, Reykjanesbæ og nú einnig í Kaupmannahöfn.