VGK - Hönnun Verkfræðistofa
VGK-Hönnun verkfræðistofa er alhliða ráðgjafar- og þekkingarfyrirtæki. Fyrirtækið byggir á traustum grunni verkfræðistofanna VGK hf. og Hönnunar hf. en þær voru báðar stofnaðar árið 1963 og sameinuðust undir einu merki í ársbyrjun 2007.
Með sameiningu þessara tveggja fyrirtækja varð til stærsta verkfræðistofa landsins sem getur boðið viðskiptavinum sínum fleiri og betri heildarlausnir, bæði hérlendis og erlendis. Starfsemi Hönnunar tengdust einkum verkefnum á sviði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, viðhaldsverkefnum, áætlanagerð, verkefnaeftirliti, umhverfisráðgjöf, bygginga- og verkefnastjórnun, jarðtækni og jarðfræði, jarðefna- og byggingarannsóknum, samgöngumannvirkjum, orkumannvirkum og veitukerfum. Helstu verkefni VGK voru hins vegar á sviði jarðvarmavirkjana, vatnsaflsvirkjana, iðnaðarferla, stálvirkja, eldvarnakerfa, lagna og loftræstinga, sem og verkefna tengdum sorpmeðhöndlun og ráðstöfun sorps.