Glitnir hyggst efla þjónustuna á netinu enn frekar með nýju kerfi Glitnir og Atóm/Núlleinn hafa gert samstarfssamning sem kveður meðal annars á um að Glitnir nýti sér vefstýrikerfið Dísil CMS fyrir sig og tengd fyrirtæki hérlendis og erlendis. Nú þegar keyra vefsíður Glitnis i noregi og Almenna lífeyrissjóðsins í Disil.Við sameiningu fjórbankanna 1990 mynduðu Iðnaðarbanki, Alþýðubanki, Verslunarbanki og Útvegsbanki saman Íslandsbanka. Árið 2000 sameinuðust Fjárfestingarbanki atvinnulífsins og Íslandsbanki undir nafni Íslandsbanka-FBA,
en FBA tók á sínum tíma við starfsemi Fiskveiðasjóðs Íslands, Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs og Útflutningslánasjóðs.
Ári síðar opnaði Íslandsbanki-FBA skrifstofu í London og í mars 2002 var nafni Íslandsbanka-FBA breytt í Íslandbanka. Árið 2003 hóf bankinn starfsemi í Lúxemborg og árið 2004 keypti hann svo KredittBanken og BNbank í Noregi.
Glitnir lítur á Noreg og Ísland sem sinn heimamarkað. Til að undirstrika það er þjónusta bankans veitt undir nafninu Glitnir frá mars 2006.
Glitnir byggir því á traustum grunni fjölmargra banka og sjóða sem gegnt hafa mikilvægu hlutverki í efnahagslegum framförum á Íslandi og bættum lífskjörum almennings í meira en 100 ár.